Jæja stelpur...
Bara komin jól enn og aftur, þetta er svo geðveikt fljótt að líða...og þau eru alveg að verða búin ( að mér finnst ). Komið nýtt ár eftir nokkra daga, sem verður klárlega árið okkar, ha?

Er það ekki annars? ALveg eins og 2006, 2007 og 2008 áttu að vera

Hvernig eru jólin annars búin að vera hjá ykkur?
Við vorum 5 saman þessi jól; Mamma, pabbi, Magnús, Gunnar og ég, og vá hvað það voru fáir pakkar!

Haha...vorum að reyna treyna þetta í einhvern tíma og svo var bara allt búið! Ég bara trúði því ekki og bað Magnús um að kíkja aðeins betur, þetta gæti ekki verið allt! Hehehehe....nei nei þetta var fínt. Er bara ánægð með það sem ég fékk í jólagjöf.
Það er ball á Patró í kvöld og ég er bara ekki að nenna...ég er orðin svo ógeðslega léleg í þessu. Gunnar bró fór ásamt einhverju liði en ég sit ein heima með ma og pa.....sem reyndar eru bæði veik! Rosa gaman! Krossa fingur að ég fá ekki þessa pest

Hlakka til að djamma með ykkur á næsta ári, það verður gaman að gera loksins eitthvað saman... Finnst ég aldrei sjá ykkur

En jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni....langaði bara að skrifa eitthvað hérna inn

Verðum nú í bandi elskurnar mínar. Hafið það nú gott.
Knús og kossar!